<$BlogRSDUrl$>

Þar sem allt skeður og ekki neitt....

laugardagur, maí 08, 2004

Selja selja 

Hihi. Þetta er komið í lag. Íbúðin er komin á sölu, það gerðist í dag! Jibbí. Getið tékkað á henni inn á t.d. mbl.is/fasteignir ossa fínt. Minns er svo ánægður. Er þessa dagana að tapa mér yfir því sem ég á að kaupa í staðinn. Langar í alveg splunkunýtt! Skoðaði alveg nýtt í dag í Grafarholtinu, nánar : Kirkjustétt. Geðveik íbúð, en búið að selja þessa flottustu og svo eru þær kannski aðeins of dýrar fyrir einstæðing eins og mig! En bara vinna í lottó, þá reddast þetta allt saman. Það er reyndar spurning að hlýða einum vitrum manni sem sagði við mig í dag að ég skyldi selja hina fyrst og pæla svo! Ég bara hef ekki þolinmæði í þetta allt saman :) Jæja, lúlla núna. Var að vinna í kvöld og vinna opnun - lokun á morgun. Svo er það rallið á sunnudaginn. Byrjum kl 11 á geitháls. Eknar 2 ferðir og síðan 4 ferðir á gufunesinu. Mæli með þessu. 17 !!!!! bílar skráðir til leiks ! Bara gaman. See´ya honeys :)

! ! Money :) ! !

This page is powered by Blogger. Isn't yours?